Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar var í mánaðarlöngu starfsnámi á Síldarminjasafninu á Siglufirði í maí mánuði. Jónína Magnúsdóttir er að taka mastersnám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og er hluti af náminu starfsnám. Vann hún ýmis störf á safninu í maí, meðal annars gestamóttöku, kynningu á safninu og skráningu á bókum Síldarminjasafnsins í Gegni, sem er skráningarkerfi bókasafna á Íslandi. Skráði hún yfir 300 bækur í gagnagrunninn og má nú finna bækur Síldarminjasafnsins í þessum grunni á Gegni. Vann hún hluta starfsins í sjálfboðavinnu þar sem ekki gafst tími til að skrá allar þessar bækur á námstíma hennar hjá safninu.

IMG_6923
Steinunn María og Jónína á Síldarminjasafninu.- Mynd: sild.is