Skólaakstur fellur niður í dag í Fjallabyggð
Skólaakstur fellur niður í dag í Fjallabyggð þar sem veðurspá er mjög slæm. Kennt verður samkvæmt óveðursskipulagi og mæta nemendur á starfsstöð í sinni heimabyggð.
Skólastarfið hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 13:30 – frístund lýkur kl. 14:30 og lengd viðvera tekur við hjá þeim sem þar eru skráðir til kl. 16:00.