Skiptihelgi skíðasvæða á Norðurlandi eru dagana 16.-17. febrúar eða um næstu helgi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði eða á Sauðárkróki geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi.
Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðja skiptihelgin af fimm en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.