Skiptihelgi skíðasvæða á Norðurlandi verður helgina 19.-20. janúar. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða.
Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar fyrir skíða- og brettafólk. Þá er þetta önnur skiptihelgin af fimm en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.