Fram kemur í tilkynningu frá Skíðasvæðinu í Skarðsdal að svæðið sé lokað í dag, sunnudaginn 27. janúar vegna veðurs. Mjög slæmt veður hefur verið á Siglufirði um helgina og hviðurnar ná 40-50 m/s. Lítils háttar rigning er á svæðinu og vindurinn 20-30 m/s.