Skíðasvæði Dalvíkur opið um helgina
Skíðasvæði Dalvíkur opnar klukkan 10:00 í dag, laugardaginn 13. mars og opið til 16:00. Snjótroðarinn hefur verið bilaður og því vannst ekki tími til að klára allt svæðið fyrir opnun. Það er því aðeins opið á neðra svæðinu í dag, laugardag. Stefnt er að því að hafa allar leiðir opnar á morgun, sunnudag.