Um síðustu helgi fagnaði Skíðafélag Ólafsfjarðar 25 ára afmæli. Kaffisamsæti var í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði þar sem farið var yfir sögu félagsins og þrír sjálfboðaliðar voru heiðraðir af Skíðasambandi Íslands. Einnig var í boði fyrir gesti að prófa skíðaskotfimi en Skíðafélag Ólafsfjarðar á fjóra leysigeisla riffla og skotmörk sem gestir gátu prófað.

Skíðafélag Ólafsfjarðar er ungt félag, stofnað 18.október 2001, en skíðasagan í Ólafsfirði nær mun lengra aftur. Í afmælisveislunni fór Kristján Hauksson, formaður Skíðafélag Ólafsfjarðar, lauslega yfir sögu félagsins, sagði frá helstu framkvæmdum, kaupum á troðurum og uppbyggingu mannvirkja. Farið var yfir mótahald félagsins og samstarf við Skíðafélag Dalvíkur um mótahald. Síðast en ekki síst þakkaði Kristján fyrir alla sjálfboðaliðana sem gera félagið eins öflugt og það er.

Ólafur Björnsson kom í afmælið sem fulltrúi SKÍ og heiðraði þrjá sjálfboðaliða sem hafa verið duglegir í gegnum tíðina. Alda María Traustadóttir fékk silfurmerki SKÍ, Sigurpáll Gunnarsson fékk Silfurmerki SKÍ og Haukur Sigurðsson fékk Gullmerki SKÍ.