Næst síðasta skemmtiferðaskip sem hefur bókað dvöl á Siglufirði þetta sumarið er skipið Ocean Nova en skipið var á Siglufirði föstudaginn 4. september og stoppaði hluta úr degi í höfninni. Skipið var með 78 farþega og 38 áhafnarmeðlimi um borð. Skipið stoppaði stutt við Grímsey áður en það sigldi til Siglufjarðarhafnar. Þann 18. september næstkomandi mun skipið stoppa á Oddeyrarbryggju á Akureyri. Skipið er byggt árið 1992 í Danmörk og var ætlað að sigla á Grænlandi í ísilögðum fjörðum þar. Ocean Nova er númer 18 í röðinni sem stoppar á Siglufirði þetta sumarið. Skipið er að bjóða upp á 14 daga ferðir árið 2016 sem munu enda á Akureyri en þaðan verður farþegum flogið til Reykajvíkur.


