Dagana 27. – 30. október næstkomandi verður listasmiðjan Skafl haldin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í fjórða sinn með þátttöku listamanna með ólíkan bakgrunn í listum.
Á smiðjunni kemur fólk saman víða að og vinnur í frjálsu flæði og þvert á listgreinar í nokkra daga. Smiðjan er hugsuð sem tilraunasmiðja og verða því ekki endilega til fullmótuð verk eða hugmyndir á vinnutímanum. Mikilvægast er samtalið og samvera listamannana og samskipti við bæjarbúa.
Auk Alþýðuhússins munu þátttakendur vinna í Herhúsinu og í Ráðhúsi Fjallabyggðar og verður afrakstur smiðjunnar sýndur í Ráðhúsi Fjallabyggðar og með uppákomu í Alþýðuhúsinu.
Þátttakendur:
- Katrin Hahner – myndlist / tónlist
- Andreas Brunner – myndlist
- Aðalheiður S. Eysteinsdóttir – myndlist
- Ólöf Helga Helgasóttir – myndlist
- Brák Jónsdóttir – myndlist.
- Helga Páley Friðþjófsdóttir – myndlist
- Logi Höskuldsson – myndlist / tónlist
- Jaouad Hbib – Heimspeki, matargerð
- Rodrigo Lopes – tónlist
- Lefteris Yakoumakis – myndlist
- Brynja Baldursdóttir – myndlist
- Eleftheria Katsianou – kvikmyndagerð