Sjómannadagsráð Sjómannafélags Ólafsfjarðar hefur síðustu ár fært stærstu styrktaraðilum Sjómannadagshátíðar viðurkenningu, og í byrjun október fóru Egill Ólason og Ægir Ólafsson fyrir hönd Sjómannadagsráðs og afhendu sveitarfélaginu Fjallabyggð og Ísfélaginu hf. viðurkenningar. Það var Ólafur Helgi Marteinsson aðstoðarforstjóri hjá Ísfélaginu og Hafdís Huld Björnsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar sem tóku við viðurkenningunum.

