Dagana 12.-14. janúar fór fram Bikarmót SKÍ í skíðagöngu á Akureyri. Skíðafélag Ólafsfjarðar átti sjö þátttakendur á mótinu sem stóðu sig öll frábærlega.
Í flokki 13-14 ára stúlkna keppti Björg Glóa Heimisdóttir, í flokki 15-16 ára kepptu Sigurlaug Sturludóttir, Guðrún Ósk Auðunsdóttir, Svava Rós Kristófersdóttir, Árni Helgason og Haukur Rúnarsson. Í kvennaflokki keppti svo Karen Helga Rúnarsdóttir.
Á föstudag var keppt í sprettgöngu með hefðbundinni aðferð. Þar sigurðu bæði Árni og Svava, Guðrún Ósk varð í 2.sæti, Karen Helga í 3. sæti, Björg Glóa í 5. sæti og Haukur í 5. sæti.
Á laugardag var keppt í mismunandi vegalengdum eftir aldri með frjálsri aðferð. Svava Rós sigraði aftur og Guðrún Ósk aftur í 2. sæti og Sigurlaug í 4. sæti. Árni var í 2. sæti og Haukur í 5. sæti. Björg Glóa í 4. sæti og Karen Helga varð í 3. sæti í kvennaflokki, önnur í sínum flokki 17-18 ára.
Mótinu lauk svo með hefðbundinni göngu á sunnudag. Í 15-16 ára flokki stúlkna sigarði Svava Rós, Guðrún Ósk í 2. sæti og Sigurlaug 4. sæti. Í 15-16 ára flokki drengja varð Árni þriðji og Haukur fimmti. Í flokki 13-14 ára stúlkna varð Björg Glóa þriðja og í kvennaflokki varð Karen Helga fimmta, sem gerði þriðja sæti í 17-18 ára flokki.
Skíðafélag Ólafsfjarðar greindi fyrst frá þessu.