Skíðafélag Siglufjarðar stendur fyrir símabingói nú í desember.  Símabingó er venjulegt bingó, eini munurinn er sá að spilað er heima. Á hverjum seldum miða eru 3 bingóspjöld. Nóg er að fylla eitt spjaldanna til að fá bingó. Fyrstu tölur verða dregnar út, fimmtudaginn  8. desember.

Tölur verða lesnar inná símsvaranúmer: 871-0053, klukkan 18, daglega og einnig verða tölurnar í Samkaup Siglufirði.

 Gengið verður í hús á Siglufirði og spjöldin seld. Einnig verður Siglósport með spjöld til sölu.  15 glæsilegir vinningar, t.d. hótelgisting, árskort í Skarðið, matur úr Samkaup, fatnaður, ilmir og ýmiss gjafabréf.

Renningurinn með þrem spjöldum kostar kr. 1.500. Ítarlegri upplýsingar eru á fylgiblaði með Bingó-spjöldunum.  Tökum vel á móti skíðakrökkunum.