Í aðalúthlutun safnasjóðs árið 2018 var úthlutað um 115 milljónum kr. í verkefna- og rekstrarstyrki. Veittir voru 88 verkefnastyrkir en alls bárust 146 verkefnaumsóknir að þessu sinni. Heildarupphæð verkefnastyrkja var 90,6 milljónir kr. Alls fengu 35 viðurkennd söfn rekstrarstyrki en heildarfjárhæð þeirra var 24,1 milljón kr. og hver styrkur á bilinu 600.000 kr. til 900.000 kr. Síldarminjasafnið á Siglufirði hlaut tvo verkefnastyrki í ár, annars vegar fyrir Skráningarátak – bræðsluminjar, og fékkst styrkur fyrir 1,2 milljónir króna og svo fyrir verkefnið Lifandi frásagnir – miðlun í sýningum og fékkst styrkur fyrir það upp á 1,5 milljónir króna. Meðal annarra styrkja til safna á Norðurlandi var Safnasafnið, Minjasafnið á Akureyri og Iðnaðarsafnið á Akureyri. Allar úthlutanir og styrki má sjá á vef Safnaráðs.

Fulltrúar þeirra safna sem hlutu fimm hæstu verkefnastyrkina að þessu sinni kynntu verkefni sín í úthlutunarboði safnaráðs sem fram fór í kjölfar vorfundar listasafna í Listasafni Íslands sl. mánudag. Þeir voru:

• Byggðasafnið í Görðum – ný grunnsýning Byggðasafnsins í Görðum, fasi 2
• Byggðasafn Vestfjarða – Ég var aldrei barn, annar hluti
• Borgarsögusafn Reykjavíkur – Safngestir sem vísindafólk á sjóminjasafni
• Gerðarsafn – Listasafn Kópavogs – GERÐUR | Grunnsýning á verkum Gerðar Helgadóttur
• Náttúrufræðistofa Kópavogs – Margmiðlunarvæðing grunnsýningar

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra var viðstödd viðburðinn og hélt þar ávarp: „Söfnin í landinu eru okkar fjársjóðir. Þangað sækjum við fróðleik og innblástur og þau tengja okkur við tímann og söguna. Þetta er í sautjánda sinn sem úthlutað er úr safnasjóði. Sú vinna sem þar að baki býr – bæði af hálfu safnanna, safnaráðs og þeirra sem fara yfir umsóknirnar hverju sinni – hlýtur jafnan litla athygli. Svo hér er vert að þakka þeim sem komið hafa að þessari faglegu vinnu gegnum árin og óska jafnframt öllum styrkþegum sjóðsins til hamingju. Gleðilegt safnasumar.“

Heimild: stjornarrad.is