Við Síldarminjasafnið

Í ljósi hertra sóttvarnarráðstafana hefur Síldarminjasafnið á Siglufirði aflýst öllum viðburðum sem safnið hafði auglýst fyrir komandi helgi.
Til stóð að bjóða upp á síldarsaltanir, leiðsagnir um safnið, gönguferðir, netasmiðju og síldarhlaðborð – en þessir viðburðir bíða betri tíma.

Starfsfólki safnsins er umhugað um að framfylgja tilmælum yfirvalda í einu og öllu, og munum við því jafnframt takmarka fjölda gesta í safnhúsum Síldarminjasafnsins, með tilliti til húsrýmis og tveggja metra fjarlægðarmarka, sem og loka fyrir aðgang safngesta að síldarskipinu Tý SK.

Eftir sem áður eru gestir hjartanlega velkomna á safnið, sem verður áfram opið alla daga frá 10-18 – en með aukinni áherslu á takmarkaðan fjölda safngesta.