Sigurvegari í ljóðasamkeppni frá Grunnskóla Fjallabyggðar
Menntamálastofnun í samstarfi við KrakkaRúv efndi til ljóðasamkeppni grunnskóla í tilefni af degi íslenskrar tungu.
Þetta árið var ljóðformið frjálst bæði hvað varðar form og innihald. Frá þessu var fyrst greint á vef Grunnskóla Fjallabyggðar.
Það er sönn ánægja að tilkynna að Unnsteinn Sturluson, nemandi í Grunnskóla Fjallabyggðar var hlutskarpastur á unglingastigi með ljóðið Ljósið mun sýna þér sannleikann. Þetta er annað árið í röð sem Grunnskóli Fjallabyggðar á vinningshafa í keppninni.
Verðlaunaljóðið:
Ljósið mun sýna þér sannleikann
Ég sá ljósið koma
á himininn,
það sýndi mér sannleikann.
Að við löbbum
en förum ekki neitt.
Að við borðum
en samt er ekkert nóg.
Að við gefum
en ekkert er þar.
Að við elskum
eitthvað sem er ekki til.
Því lífið heldur áfram
þótt þú og ég förum,
því lífið heldur áfram
þó ekkert sé þar.
Á heimasíðu Menntamálastofnunar mátti einnig finna ljóð sem voru á meðal þeirra bestu á unglingastigi og þar átti Grunnskóli Fjallabyggðar fleiri fulltrúa:
Strákur með bleikar neglur
Er ég stelpa?
Fólk segir að ég hagi mér eins og stelpa,
mér finnst það ekki.
Strákarnir í bekknum mínum
vilja ekki vera með mér
vegna þess að ég vil ekki fara í fótbolta með þeim,
þannig ég verð með stelpunum.
Þær naglalökkuðu sig,
mig langaði að prófa,
þær sögðu já og ég var mjög fallegur,
það sögðu þær allavega.
Ég fór heim og sýndi mömmu,
hún gretti sig en sagði að ég væri flottur.
Ég spurði hvað væri að,
hún sagði: ,,Fólki finnst skrítið að strákar séu með stelpudót á sér.”
… Af hverju?
Af hverju er það skrítið að mig langi að vera með bleikar neglur?
Ég er ekki stelpa,
ég veit ég er strákur,
strákur með bleikar neglur.
Kolbrún Kara, 9. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar
Fleiri ljóð eftir nemendur grunnskóla Fjallabyggðar má sjá hér.