Húsið við Aðalgötu 15 í Ólafsfirði hefur verið selt eftir að hafa verið fyrst auglýst á sölu í lok júlí 2024. Húsið nefnist Sigurhæð og voru hugmyndir uppi árið 2013 að breyta húsinu í safn. Húsið var að lokum selt árið 2015.  Húsið er byggt árið 1962 og er á þremur hæðum með 10 herbergjum. Húsið gæti því nýst sem gistiheimili en áhugavert er að sjá hvað nýr eigandi gerir við húsnæðið sem er 291 fermetrar og stendur á stórri lóð á áberandi stað í Ólafsfirði.

Þegar húsið fór fyrst á sölu árið 2024 þá var ásett verð  65,9 milljónir. 1. september 2024 var verðið lækkað í 61,9. Þann 5. desember 2024 var húsið enn óselt og var þá verðið aftur lækkað og nú í 58 milljónir. Þann 18. júlí 2025 var húsið enn óselt og var verðið nú lækkað í 49,9 milljónir eða rúmlega 171.000 krónur fermeterinn.

Samkvæmt fasteignaauglýsingu þá er húsið núna selt.