Siglufjarðarvegur er enn lokaður um Almenninga.

Þæfingur er allvíða á Norðurlandi ásamt skafrenningi eða éljagangi en snjóþekja eða hálka á nokkrum leiðum. Unnið er að hreinsun á öllum helstu vegum.

Vegurinn um Þverárfjall er lokaður, en unnið er að því að opna hann í dag. Ófært er um Víkurskarð.