default

Mikið grjóthrun og töluverð hreyfing er á landinu við veginn í Almenningum eftir úrkomu síðastliðinna daga. Vegurinn verður áfram lokaður, til miðvikudags samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Hjáleiðir eru um Lágheiði (82) eða Öxnadalsheiði (1) og Ólafsfjarðarveg (82).

Nýjar myndir frá Halldóri Hálfdanssyni sýna slæmt ástand á veginum og hvernig aurskriðurnar fóru yfir veginn. Ótrúlegar myndir sem Halldór náði á dróna sem sýnir vel stöðu mála á svæðinu.

Myndirnar eru birtar með góðfúsu leyfi Halldórs.

default
default
default
default
default
default