Verslunin Siglósport á Siglufirði tók að sér það skemmtilega verkefni að panta fatnað og töskur fyrir iðkendur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar. Það voru dósaguttarnir sem söfnuðu dósum og gáfu KF til að styðja við yngri flokka félagsins.
Gjöfin inniheldur tösku, keppnistreyju, keppnisstuttbuxur, keppnissokka, buxur og hettupeysu.
Siglósport er vel búið til að merkja vörur og tókst vel til.
Iðkendur KF mættu í myndatöku þegar varningurinn var tilbúinn.

