Siglómótið í blaki fer fram um helgina og kemur inn í dagskrá Vetrarleika í Fjallabyggð. Bæði verður leikið í Ólafsfirði og á Siglufirði og er reiknað með tæplega 40 liðum sem taka þátt í karla- og kvennablaki. Fyrstu leikirnir hefjast á föstudagskvöldið og síðustu leikirnir eru síðdegis á laugardag. Á laugardagskvöld verður svo matur, skemmtun og ball fyrir keppnisliðin en verðlaunaafhending fer fram í Bátahúsi Síldarminjasafnsins.

Alla leikina má sjá hér.