Alls tóku 89 kylfingar þátt í þrettánda golfmóti Siglfirðinga sl. sunnudag sem fram fór í Borgarnesi á Hamarsvelli. Full bókað var í mótið og var það fjölmennasta sem haldið hefur verið á vegum félagsins hingað til. Því er greinilegt að mótið nýtur mikilla vinsælda eins og golfíþróttin.
Hamarsvöllur er mjög skemmtilegur völlur að spila, með frábæru umhverfi og í góðu standi.
Golfklúbbi Borgarness og alveg sérstaklega Íþróttastjóra klúbbsins, Guðmundi Daníelssyni er þakkað sérstaklega fyrir mikla aðstoð og lipurð mikla við að setja upp mótið og keyra það áfram.
Allir þátttakendur fengu golfkúlupakka með skjaldarmerkis merktum golfkúlum svo húfu merki með Siglufjarðarskjaldarmerkinu á.
Úrslit urðu sem hér segir:
Höggleikur
1. Jóhann Már Sigurbjörnsson á 76 höggum.
2. Helgi Runólfsson á 81 höggi
3. Finnur mar Ragnarsson 87 högg.
Í kvennaflokki með forgjöf urðu úrslit þessi:
1. Ingibjörg Sigurrós Helgadóttir 33 punktar
2. Jóhanna María Björnsdóttir 32 punktar
3. Ólína Þórey Guðjónsdóttir 31 punkt
4. Bryndís Björnsdóttir 30 punktar
5. Annabella Albertsdóttir 30 punktar
Í karlaflokki með forgjöf urðu úrslit þessi:
1. Gústaf Adolf Þórarinsson 36 punktar
2. Ragnar Ólafsson 34 punktar
3. Haraldur G. Erlendsson 34 punktar
4. Björgvin Gestsson 33 punkta
5. Kristján L. Möller 33 punktar
Næstir holu voru:
Á 2. braut
Ástþór Árnason 5,38m
Á 8. holu
Hanna María Hjálmtýsdóttir 1,55m
Salmann Héðinn Árnason 2,52m
Á 18 holu
Liney Rut Halldórsdóttir 2,91m
Björn Steinar Stefánsson 3,52m
Lengstu teighögg áttu:
Finnur Ragnarsson og Oddný Sigsteinsdóttir
Tilkynnt hefur verið að mótið á næsta ári verður á svipuðum tíma og á sama stað þ.e. Hamarsvelli í Borgarnesi.
Mótsstjórn þakkar öllum þátttakendum komuna og fyrir skemmtileg mót og samveru. Einnig þakkar mótsstjórn þeim fjölmörgu fyrirtækjum svo og einstaklingum kærlega fyrir veittan stuðning með sérlega glæsilegum verðlaunum.
Mótsstjórn Siglfirðinga golfmótsins,
Kristján L Möller.
Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Guðjón Marínó Ólafsson
Björn Steinar Stefánsson.
Jóhann G Möller.