Sex iðkendur frá Tennis- og Badmintonfélagi Siglufjarðar fóru til Danmerkur í liðinni viku og tóku þátt í Yonex GSB badmintonbúðunum í Greve. Þetta eru árlegar búðir og þriðja árið í röð sem iðkendur frá TBS taka þátt. Þátttakendur mættu laugardaginn 25.júlí til Greve og búðirnar hófust svo daginn eftir og þeim lauk föstudaginn 31.júlí.
Í ár voru þátttakendur frá 16 löndum sem tóku þátt en þau voru á aldrinum 12-19 ára og þá voru 10 þjálfarar frá 5 löndum.
Æfingar hófust kl. 09 á hverjum morgni og æft var þrisvar sinnum á dag ásamt mismunandi keppnum eða viðburðum á kvöldin.
Síðar í ágúst (17.-19.ágúst) fara svo fram BADÍS badmintonbúðirnar á Akranesi fyrir iðkendur fædda frá 2012-2015 og það eru um 10 iðkendur frá TBS skráðir í þær búðir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá TBS.