Sérhæfður pílustaður mun opna á Glerártorgi á Akureyri í haust. Framkvæmdir eru hafnar og mun staðurinn innihalda 8 pílubása og karaoke herbergi. Mikið verður lagt í staðinn til að gera hann sem glæsilegastan.
Skor hóf rekstur fyrir rúmum þremum árum í Reykjavík. Í lok árs verða staðirnir orðnir fjórir talsins, einn í Reykjavík, á Akureyri og tveir í Danmörku. Skor þróar sitt eigið sérhæfða pílukerfi og er því hvergi hægt að spila á því nema á stöðum Skor.