Samsýning 30 norðlenskra listamanna

Í gær á Akureyrarvöku var opnuð sýningin Haust í Listasafninu á Akureyri. Þar munu 30 norðlenskir listamenn leiða saman hesta sína og sýna verk sem ætlað er að gefa innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi. Sýningin er mjög fjölbreytt, bæði hvað varðar aðferðir og miðla. Til sýnis verða málverk, videóverk, leirverk, skúlptúrar, ljósmyndir, skjáverk, textílverk, teikningar og bókverk. Meðan sýnenda eru tveir fyrrum bæjarlistamenn Fjallabyggðar, þau Bergþór Morthens og Guðrún Þórisdóttir. Nánari upplýsingar um verkin má lesa á vef Listasafns Akureyrar.

Listamennirnir sem sýna á sýningunni eru: Arna Valsdóttir, Arnar Ómarsson, Baldvin Ringsted, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Guðrún Þórisdóttir, Gunnhildur Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir, Joris Rademaker, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Klængur Gunnarsson, Marina Rees, Ragnheiður Þórsdóttir, Rannveig Helgadóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Rósa Júlíusdóttir, Sam Rees, Stefán Boulter, Unnur Óttarsdóttir, Victor Ocares, Þórarinn Blöndal, Þórgunnur Oddsdóttir, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.

Sýningin stendur til 18. október og er opin þriðjudaga – sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.

11914164_992156770806165_8420265531196683570_n