Opinn samráðsfundur verður haldinn í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði, fimmtudaginn 5. janúar kl. 17:00, um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2022-2023.

Þar gefst hagsmunaaðilum tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við kjörna fulltrúa og bæjarstjóra t.d. vegna hugsanlegra tillagna Fjallabyggðar um sérreglur.

Fjallabyggð er gefinn frestur til 13. janúar nk. til að senda Matvælaráðuneytinu tillögur um sérreglur.