Samfélagslögreglan á Norðurlandi eystra kom með fræðslu í Menntaskólann á Tröllaskaga í vikunni. Það var Júlíus Þorvaldsson, heimamaður og fyrrum nemandi sem flutti fræðsluna frá Lögreglunni til nemenda skólans. Júlíus starfar við almenn lögreglustörf en auk þess er hann í hlutverki samfélagslögreglu sem sér um ýmiskonar fræðslu. Þessi fræðsla miðar að því að auka öryggi borgaranna og koma í veg fyrir afbrot auk þess sem hún er leið til að bæta þjónustu og efla tengsl lögreglunnar við almenning, ekki síst unga fólkið.
Samfélagslöggur heimsækja eftir beiðni skóla, félagsmiðstöðvar, stofnanir og félög til að miðla upplýsingum um öryggi og forvarnir og er hægt að óska eftir heimsókn frá samfélagslöggu á síðu lögreglunnar. Í erindi sínu fór Júlíus m.a. yfir almennar umferðarreglur, sýnileika lögregunnar, notkun endurskinsmerkja og öryggi í tengslum við rafknúin ökutæki eins og rafmagnshlaupahjól. Að sýna ábyrgð í umferðinni var útgangspunkturinn og má segja að slík fræðsla eigi sérlega vel við á menntaskólaárunum þegar flestir eru að taka bílpróf og fara sem ökumenn út í umferðina í fyrsta sinn.