Saga úr síldarfirði til sýnis í Danmörku
„Bókin Saga úr síldarfirði og vatnslitamyndir úr bókinni eru nú til sýnis á Norrænu strandmenningarhátíðinni “Nordisk kystkulturstævne 2012” í Ebeltoft í Danmörku. www.ebeltoft2012.dk Bæði bókin og listsýningin hafa fengið ómælda athygli og lof hátíðargesta. Að hátíð lokinni verður sýningin send til Karlaskorna í Svíþjóð þar sem hún verður til sýnis á norrrænu strandmenningarhátinni sem haldin verður þar dagana 1.- 7. júlí 2013. Það er samróma álit fulltrúa norrænu strandmenningarsamtakanna að bókina verði að þýða á aðra norræna tungu þar sem hún hefur að geyma einstaka og mikilvæga heimild um þátt norrænnar strandmenningar“.
Þetta skrifar Sigurbjörg Árnadóttir formaður Íslenska vita- og strandmenningarfélagsins, en félagið annaðist þátttöku á hátíðinni fyrir Íslands hönd. Meðal annars var framlag þess umrædd sýning á myndunum og bók Síldarminjasafnsins. Þess má geta að bókin var kynnt á Bókamessunni miklu í Frankfurt í fyrra og fleiri erlendum bókakynningum. Þá er fyrirhugað að sýningin fari til Vestmannaeyja haustið 2013.
Texti: www.sild.is