Tónlistarhátíðin Berjadagar fer fram í Ólafsfirði 17.-19. ágúst. Á hverju kvöldi verða klassískir tónleikar og ýmsir viðburðir í boði á daginn. Dagskráin er fyrir alla aldurshópa og ókeypis aðgangur fyrir 18 ára og yngri. Opnunartónleikarnir „Líttu sérhvert sólarlag“ verða í Ólafsfjarðarkirkju á fimmtudagskvöldinu þar sem flutt verða þekkt ljóð og aríur. Á föstudagskvöldinu verða kammertónleikarnar „Reimleikar í kirkjunni“ og Stelpurófan rappar fyrir börn og unglinga á laugardeginum. Gestir eru hvattir til að tryggja sér miða á  „Tapas og tónlist í Tjarnarborg“ sem fara fram laugardagskvöldið 19. ágúst í Menningarhúsinu þar sem gestir munu gæða sér á girnilegum tapasréttum og ljá suðrænni tónlist eyra. Klykkt er út með Berjamessu og gönguferð sunnudaginn 20. ágúst.

Bjarni Frímann Bjarnason kemur fram ásamt glæsilegum hópi tónlistarmanna og söngvara. Sérstakur gestur hátíðarinnar að þessu sinni er þýska söngstjarnan Frédérique Friess.

Aðgangsverð á alla hátíðina og staka viðburði:

Miði á tónleika í kirkjunni: 3000 kr. Frítt fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri

Miði á ,,Tapas og tónlist í Tjarnarborg: 6500 kr./2000 kr. fyrir börn 18 ára og yngri

Hátíðarpassi á alla viðburði með mat í Tjarnarborg: 9500 kr.

Miðasala fer fram á tix.is og við innganginn í Ólafsfjarðarkirkju

Upplýsingar um miðakaup: berjadagar.artfest@gmail.comgistihusjoa@gmail.com eða s. 6152231 (Ólöf)

Nánari upplýsingar um listamenn á heimasíðu og facebook-síðu: www.artfest-berjadagar.ishttps://www.facebook.com/berjadagar/