Rúta með 25 farþega valt út á hliðina skammt frá Múlagöngum
Laust fyrir klukkan 14:30 í dag var tilkynnt um að rúta hefði farið út af og oltið á hliðina á Ólafsfjarðarvegi skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðar megin. Alls voru 25 farþegar í rútunni auk ökumanns og fararstjóra. Engin alvarleg slys urðu á fólki. Rútan fór út af veginum við Brimnes í Ólafsfirði með erlenda ferðamenn sem voru á leið á Síldarminjasafnið á Siglufirði.
Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningalið var sent á vettvang.
Fjöldahjálparstöð var opnuð í Menntaskólanum á Tröllaskaga, þangað sem farþegar rútunnar voru fluttir og starfsfólk Rauðakrossins hlúði að þeim.
Lögregla vinnur að rannsókn að tildrögum slyssins á vettvangi.
Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá þessu.
Samkvæmt veðurupplýsingum hjá Veðurstofunni þá var um 3ja stiga hiti þegar óhappið varð og 3 m/s vindur og 7 m/s í hviðum. Á vef Vegagerðinnar er sagt að hálka sé á Ólafsfjarðarvegi.
