Róbert Guðfinnsson athafnamaður á Siglufirði hefur sótt um þrjár lóðir á Siglufirði fyrir hönd fyrirtækisins Selvíkur ehf. Lóðirnar sem um ræðir eru Suðurgata 14, Lindargata 11 og Lindargata 11b.  Suðurgata 14 er á mjög góðum stað á Siglufirði með útsýni yfir höfnina og núverandi tjaldstæði bæjarins. Lindargata 11 liggur ekki langt frá Siglufjarðarkirkju og er einnig mjög góð staðsetning.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt málið sem fer svo fyrir bæjarstjórnina til loka samþykktar.