Gildistími þjónustusamnings um rekstur- og umsjón tjaldsvæða í Fjallabyggð er liðinn. Auglýst verður eftir nýjum rekstrar- og umsjónaraðila til næstu þriggja ára. Starfsmenn Kaffi Klöru tóku við rekstri tjaldsvæðanna í Fjallabyggð árið 2019 en höfðu árin á undan rekið tjaldsvæðið í Ólafsfirði með góðan orðstýr.
Í síðasta útboði árið 2019 þá sóttu sex aðilar um og þrír fengu viðtal. Búast má við sambærilegum áhuga núna þegar bæjarráð Fjallabyggðar tekur ákvörðun að auglýsinga eftir aðilum í rekstrar- og umsjón beggja tjaldsvæðanna í Fjallabyggð.
Tjaldsvæðið í Ólafsfirði: Mynd: Magnús Rúnar Magnússon/Héðinsfjörður.is