Fyrirhugað er að halda  reiðnámskeið í Ólafsfirði sem hefjast mun þann 7. ágúst n.k. ef næg þátttaka fæst.

  • Námskeiðið verður fyrir börn og unglinga frá fimm ára aldri og stendur í viku til tíu daga,
  • Leiðbeinandi verður Herdís Erlendsdóttir.
  • Námskeiðsgjald er kr. 15.000.

Skráning hjá Kristínu Andrésdóttur í s. 866-2115 og Guðrúnu Þorvaldsdóttur í s. 690-9692. Þær veita jafnframt nánari upplýsingar um námskeiðið. Skráningu lýkur 30. júlí.

 

Æskulýðsnefnd Gnýfara.