Skönnun á vikulegum fréttabréfum Rótarýklúbbs Ólafsfjarðar hafin af krafti með nýjum starfsmanni og styrkjum fyrir verkefninu. Félagar i Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar hafa allt frá stofnun klúbbsins skrifað vikuleg fréttabréf.  Einkum fréttir úr bæjarlífinu, bæði til sjávar og sveita. Veður,  aflabrögð, uppskerufréttir, samgöngur eru einskonar leiðarstef í bréfunum, en það er raunar fjallað um allt á milli himins og jarðar í þeim og ná þessi bréf yfir 65 ár.
Þau hafa varðveist ótrúlega vel og hefur tekist að safna þeim saman til geymslu á Héraðsskjalasafni Fjallabyggðar.  Það er hugsanlegt að vanti um 3-4 ár í safnið, líklega tvær bækur sem leitað er að.

Það var samþykkt á hátíðarfundi, fundi nr. 3.000 frá stofnun klúbbsins að koma bréfunum yfir á stafrænt form. Lítið gerðist í þeim málum fyrr en nú, lokið hafði verið við að skanna nýjustu bréfin um 700 stykki.  Verkið er einfaldlega of stórt til að hægt sé að gera það í sjálfboðavinnu og því var leitað leiða til að geta búið til starf um verkefnið.

Klúbburinn fékk höfðinglegan styrk;  600 þúsund krónur,  frá Verkefnasjóði íslenska Rótarýumdæmisins til að þoka málinu áfram. Klúbburinn er svo í samstarfi við Fjallasali/Pálshús við skönnunina.  Félagið einnig fékk ráðningarstyrk frá Vinnumálastofnun til að ráða starfsmann í verkið, en það er Jódís Jana Helgadóttir.

Menntaskólinn á Tröllaskaga á sérstakan bókaskanna sem er mikið þarfaþing í svona verkefnum og fær Jódís að nota skannann í skólanum til verksins.

Í framtíðinni er svo hægt að hugsa sér að unnt verði að birta þessi bréf á einhverri vefsíðu, t.d. síðu Pálshús, þar sem verið er að vinna í að setja upp myndasafn.  Þá verður sagan til bæði í máli og myndum.

Það á eftir að koma í ljós síðar,  en í þessum bréfum er mikil saga og hafa þau oft á tíðum verið notuð í heimildaöflun.

Rafrænu útgáfur bréfanna eru og verða geymd á tveimur stöðum til öryggis.  Bækurnar fara svo aftur á héraðsskjalasafnið að þegar skönnun lýkur.