Nýlega var gengið frá ráðningu Rebekku Rúnar Sævarsdóttur í stöðu varðstjóra Lögreglunnar á Norðurlandi eystra með aðalstarfsstöð á Dalvík. Varðsvæði hennar er austanverður Tröllaskagi, Siglufjörður, Ólafsfjörður og Dalvík.

Rebekka þekkir sig vel á svæðinu enda fædd og uppalin á Dalvík.

Hún er fyrsta konan sem er fastráðin í starf lögregluþjóns á þessu svæði og þar með fyrsta konan sem er fastráðin varðstjóri á svæðinu.