Fyrstu veðurspár snemma í vikunni gáfu til kynna að veður á Norðurlandi yrði síðra en fyrir sunnan. Í gær var skýjað og einhver væta en ekkert í líkingu við fyrstu spár sem sýndar voru á rás allra landsmanna í byrjun vikunnar.
Mikið blíðviðri hefur verið í dag í Fjallabyggð, hiti um 11 stig á Siglufirði. Spáin næstu daga einnig björt og góð. Hitinn fór yfir 13 stig í Ólafsfirði.
Veðurspá stýrir mikið hvert fjölskyldufólk leitar yfir verslunarmannahelgina.
Mikill metnaður hefur verið lagður í vandaða fjölskyldudagskrá á Síldarævintýrinu og fólk skemmt sér vel yfir helgina.Mikil tónlistardagskrá er í kvöld og á morgun er fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna.


