Auður Karen Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin í 40% stöðu hjúkrunarfræðings sem skiptist milli MA og VMA eftir nemendafjölda. Auður Karen verður til viðtals í MA fyrir hádegi á fimmtudögum.
Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:
- meiðsli og sjúkdóma
- mataræði og hreyfingu
- sjálfsmynd og líkamsímynd
- tilfinningaleg og geðræn vandamál
- áfengis- og eiturlyfjaneyslu
- reykingar og nikótínneyslu
- kynheilbrigði
- verki og vanlíðan
Skólahjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.
Aðstaða hjúkrunarfræðings er í viðtalsherbergi í Gamla skóla og er viðvera í skólanum á fimmtudögum kl. 8-13. Opinn viðtalstími hjúkrunarfræðings er kl. 10-11. Ekki þarf að panta tíma en velkomið er að senda fyrirspurn á audur@ma.is eða bara mæta á staðinn.
Forráðamönnum nemenda er velkomið að hafa samband með tölvupósti eða hringja á viðverutíma hjúkrunarfræðings.
Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur:
- vera hluti af stoðteymi skólans
- sinna fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
- vera í samstarfi við forvarnarteymi skólans og kennara við vinnu að forvörnum
- taka þátt í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli
- vera innanhandar með ráðgjöf og fræðslu til kennara og starfsfólks
- eftir þörfum sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
- finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda
Hjúkrunarfræðingur skólans er Auður Karen Gunnlaugsdóttir.