Laufey Leifsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólameistara við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og tekur til starfa þann 1. ágúst næstkomandi. Laufey hefur sinnt íslenskukennslu við FNV en þar hefur hún starfað sem afleysingarkennari með hléum undanfarin 7 ár.
Laufey hefur lokið M.Ed.-gráðu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri með framhaldsskólastig sem kjörsvið, sem og BA-prófi í íslensku.
Laufey hefur lengst af starfað sem ritstjóri og er með mikla og góða reynslu af verkefnastjórnun og almennri ritstjórn, þá sérstaklega vinnslu námsefnis fyrir framhaldsskóla og orðabóka.