Þann 1. janúar 2024 hættir Pósturinn alfarið að dreifa fjölpósti. Fjöldreifingu var hætt á suðvesturhorni landsins árið 2020 en fjölpósti var hins vegar áfram dreift á landsbyggðinni, einkum þar sem ekki var kostur á öðrum dreifingaraðila. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hætta þeirri dreifingu einnig.

Fjölpósti hefur verið dreift með almennum bréfum í gegnum tíðina. Hins vegar hefur bréfapóstur dregist saman um 80% frá árinu 2010 svo samlegðaráhrifin eru ekki lengur til staðar.  Ákvörðunin er einnig í takt við umhverfisstefnu Póstsins en við leitum stöðugt leiða til að draga úr sóun og losun koltvísýrings.

Frá 1. janúar verður eftir sem áður hægt að senda markpóst, t.d. bæklinga og auglýsingaefni, sem almennt bréf en hann mun þá lúta skilmálum bréfa varðandi verðskrá, dreifingarplan og nafnamerkingu.

Pósturinn mun verða viðskiptavinum innan handar og svara helstu spurningum sem kunna að vakna í tengslum við þessa þjónustubreytingu.