Fjölbreytt páskadagskrá er komin út í Fjallabyggð og ættu allir að finna skemmtun sér við hæfi. Úrval veitingastaða, tvö skíðasvæði, fjölbreytt söfn og menning. Íþróttahús og sundlaugar.  Hótel, gistiheimili og heimagistingar.  Matvöruverslanir bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði. Sjáumst í Fjallabyggð yfir páskana.