Áður auglýstri formlegri opnun á sýningu á efri hæð Pálshúss, Ólafsfjarðarstofu, í Ólafsfirði sem átti að fara fram laugardaginn 1. ágúst hefur verið frestað vegna Covid 19 takmarkana.
Safnið verður þó opið frá kl. 13:00 laugardaginn 1. ágúst og framvegis á opnunartíma kl. 13-17.

Farið verður eftir þeim reglum um sóttvarnir sem gefnar hafa verið út og gæti þurft að stýra fjölda gesta inn í húsið af þeim sökum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pálshúsi.