Páll Óskar í fyrsta skiptið í Hofi
Páll Óskar heldur dansleik í Hofi á Akureyri, sunnudaginn 5. ágúst. Er þetta í fyrsta sinn sem hann heldur tónleika í húsinu. Hvergi verður slegið af í glamúr og glæsileika til að gera þetta fyrsta Pallaball í Hofi að stórkostlegri upplifun. Miðaverð er frá 3500 kr. og er 22 ára aldurstakmark. Tónleikarnir hefjast á miðnætti.
Palli keyrir ballið pásulaust alla nóttina og þeytir bestu partítónlist veraldar auk þess sem hann syngur öll sín bestu lög, þar á meðal Stanslaust Stuð, Einn dans, La Dolce Vita, Allt fyrir ástina, International, Betra Líf, Ég er eins og ég er, Þú komst við hjartað í mér og Gordjöss.
Ballgestir geta kosið að vera á dúndrandi dansgólfinu, en einnig verður boðið upp á mun rólegra rými með borðum og stólum fyrir þá sem þurfa að fara á trúnó.
Rýmið sem notað verður fyrir ballið leyfir aðeins ákveðinn fjölda fólks, svo það borgar sig að versla miðana í forsölu.
Miði á Pallaball er gulltrygging fyrir góðri skemmtun, enda besti skemmtikraftur Íslands.
Mætið í glamúr-dressinu og reddið pössun.