Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi.
Jarðskjálftahrina er í gangi austan við Grímsey og hafa mælst um 2600 jarðskjálftar frá því að skjálfti að stærð 4.9 reið yfir í gær 8. september. Umrætt svæði er þekkt jarðskjálftasvæði og var svipuð hrina í gangi á svæðinu 2018.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta. Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum, sjá hér https://www.almannavarnir.is/…/varnir-gegn-jardskjalfta/
Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu 48 klst. www.vedur.is