Óvissustig almannavarna vegna rigningar og skriðuhættu er enn í gildi á Tröllaskaga. Siglufjarðarvegur er lokaður og verður áfram. Reglulegt eftirlit er með svæðinu og samráð haft við sérfræðinga Veðurstofu og Vegagerðar.
Varað er við því að fólk sé á ferðum um fjöll og hlíðar á svæðinu.
Vatn streymdi úr hlíð niður á hús á Húsavík síðastliðna nótt. Á meðan unnið var að því að ræsa vatnið fram og aðstæður metnar voru þrjú hús rýmd á Húsavík. Í ljós kom að um var að ræða vatn sem safnast hafði upp en ekki hefðbundna aurskriðu. Því fékk fólkið að fara aftur til síns heima í morgun.
Viðbragðsaðilar fylgjast grannt með framvindu mála og staðan verður endurmetin á morgun.