Siglufjarðar Apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um meistaraflokks KF í sumar eins og undanfarin ár. Á heimasíðu Siglufjarðar Apóteks getur þú pantað lyf og keypt vítamín og bætiefni, hjúkrunarvörur og snyrtivörur.
Upphitun:
KF átti heimaleik gegn Kormáki/Hvöt í gær og fór leikurinn fram á Dalvíkurvelli þar sem Ólafsfjarðarvöllur er ekki alveg tilbúinn fyrir sumarið. Kormákur/Hvöt kom uppúr 3. deildinni á síðasta ári og eru nýliðar í 2. deildinni í ár. Liðin mættust Lengjubikarnum í vor og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli eftir venjulegan leiktíma.
Enn eru nokkur meiðsli hjá KF en Javon Sample var ekki á leikskýrslu, en í markinu var hinn trausti Halldór Ingvar Guðmundsson. Þjálfari dagsins hjá KF var því Akil De Freitas sem er að glíma við smá meiðsli eftir síðasta leik.
Umfjöllun:
Bæði lið vantaði sárlega stig til að komast á blað í deildinni í þessari þriðju umferð. KF stillti upp sterku liði og reiknuðu menn með sigri heimamanna. Gestirnir komu hinsvegar ákveðnir til leiks og áttu góðan dag.
Það voru gestirnir sem tóku forystuna á 37. mínútu og leiddu í hálfleik.
Á 61. mínútu skoraði Kormákur/Hvöt sitt annað mark og voru komnir í góða stöðu þegar um 30. mínútur voru eftir á vallarklukkunni.
Þjálfari KF brást strax við þessu seinna marki með þrefaldri skiptingu á 62. mínútu. Inná komu Marinó Snær, Sævar Þór Fylkisson og Aron Elí Kristjánsson. Útaf fóru Jón Frímann, Daniel Kristiansen og Jakob Auðun. Gestirnir gerðu einnig eina skiptingu á þessum tíma.
KF freistaði þess að komast inn í leikinn með marki, og aftur var gerð skipting á 68. mínútu þegar Agnar Óli og Alex Máni komu inná fyrir Vitor Thomas og Jordan Damachoua. KF hafði nú nýtt allar sínar skiptingar.
Aftur voru það gestirnir sem skoruðu og nú á 75. mínútu og höfðu þeir örugga forystu 0-3 þegar skammt var eftir.
Gestirnir kláruðu sínar skiptingar einnig eftir þriðja markið og voru ferskir menn settir inná til að klára leikinn.
Komákur/Hvöt unnu leikinn sannfærandi 0-3 og eru komnir með fyrstu stigin sín í 2. deildinni. KF er enn án stiga eftir þrjár umferðir og byrjar mótið erfiðlega eins og á síðasta tímabili.
Næsti leikur KF verður gegn Völsungi næstkomandi fimmtudag á Húsavík.
Siglufjarðar apótek er aðalstyrktaraðili umfjallana um alla leiki KF í deild og bikar í sumar.
Takk Siglufjarðar Apótek

