Stjórn Akureyrarstofu auglýsir eftir umsóknum um starfslaun listamanna fyrir tímabilið 1. júní 2013 til 31. maí 2014. Starfslaunum verður úthlutað til eins listamanns og hlýtur viðkomandi átta mánaða starfslaun.
Markmiðið með starfslaunum listamanna er að sá sem þau hlýtur geti helgað sig betur listsköpun sinni eða einstökum verkefnum á vettvangi hennar á tímabilinu. Einungis listamenn sem eiga lögheimili á Akureyri koma til greina.
Umsækjendur skili, ásamt umsókn, upplýsingum um listferil sinn og greinargóðum upplýsingum um hvernig starfslaunatíminn skal notaður.
Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri ráðhússins að Geislagötu 9.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála hjá Akureyrarstofu í netfanginu huldasif@akureyri.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2013.