Heilsueflandi Fjallabyggð býður íbúum í opna hreyfitíma í íþróttahúsum Fjallabyggðar í mars mánuði. Um er að ræða fjögur skipti í hvoru húsi ef þátttaka verður næg. Í boði verður fjölbreytt hreyfing og góður félagsskapur. Tímarnir eru fyrir íbúa sem eru 30 ára og eldri og eru ókeypis. Þátttakendur þurfa að vera í hreinum innanhúss eða strigaskóm. Þátttaka í hreyfingunni er á ábyrgð hvers og eins.
Á Siglufirði: Þriðjudagar 7. mars, 14. mars, 21. mars og 28. mars kl. 17:30 – 18:30,
Leiðbeinandi: Lísbet Hauksdóttir íþróttakennari.
Í Ólafsfirði: miðvikudagar 8. mars, 15. mars, 22. mars og 29. mars kl. 17:00 – 18:00
Leiðbeinandi: María Bjarney Leifsdóttir íþróttakennari og Hallgrímur Þór Harðarson íþróttakennari.