Sjálfstæðisflokkurinn í Fjallabyggð stendur fyrir opnum fundi um samgöngumál laugardaginn 27. október nk. í Ráðhúsinu á Siglufirði kl. 10:00.
Ræðumaður verður Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ber fundurinn yfirskriftina “það er til önnur leið”.
Fundarstjóri verður Helga Helgadóttir formaður bæjarráðs Fjallabyggðar.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur og eru allir hjartanlega velkomnir.