Þann 2. október síðastliðinn tóku nemendur í 6.–10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Nemendur hlupu 2,5 km hring og var mest hægt að fara fjóra hringi. Við grunnskólann var drykkjarstöð þar sem þátttakendur gátu fengið sér hressingu.

Eftir hlaupið gafst nemendum kostur á að fara í sundlaugina í Ólafsfirði, slaka á og njóta samverunnar.

Myndir með fréttinni koma frá Grunnskóla Fjallabyggðar.