Frá og með 18. nóvember verður öllum pósti í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit dreift í póstboxið við Skólatröð 11, og hættir því útburður póstsins í hvert hús.

Þetta á við íbúa Hrafnagilshverfis en allir sem vilja geta hins vegar valið að fá sendingar í póstboxið.

Nú er lokið við uppsetningu á póstboxi við Skólatröð 11 og verður það tekið í notkun frá og með 18. nóvember. Íslandspóstur hefur nú dreift eyðublaði/skráningarblaði í alla póstkassa í hverfinu og gengið í hús í Bakkatröðinni til að dreifa því. Fylla þarf út þetta eyðublað sem fyrst og setja í póstkassa sem er við póstboxið í Skólatröð 11, til að hægt sé að koma pósti til skila til einstaklinga og fyrirtækja í Hrafnagilshverfi.

Íbúum er bent á Þjónustuver Íslandspósts og spjallmennið Njáll á posturinn.is .