Víða er ofankoma á Norðurlandi eystra. Ófært er á milli Dalvíkur og Akureyrar. Ófært er frá Hofsósi út í Fljót en síðan er Siglufjarðarvegur lokaður utan Fljóta vegna snjóflóðahættu, og Ólafsfjarðarmúli sömuleiðis. Ófært er í Héðinsfirði.  Óveður er í Húnavatnssýslum og Skagafirði og hált er á vegum. Ófært er yfir Þverárfjall en á Vatnsskarði er hálka og óveður.  Öxnadalsheiði er ófær og þar er stórhríð.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá Vegagerðinni kl. 21:48 í kvöld.